Flothetta
Sumarsólstöður í Laugaskarði
Sumarsólstöður í Laugaskarði
11.500 ISK
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Fögnum lengsta degi ársins í töfrandi flotviðburði í Laugaskarði
Flothetta býður upp á nærandi flotviðburð á Sumarsólstöðum í Laugaskarði í Hveragerði. Þar ætlum við að eiga fallegt stefnumót við íslensku sumarnóttina og njóta himneskrar vatnavellíðunar og fallegrar samverustundar í vatninu.
Sumarsólstöður eru kynngimagnað fyrirbæri og tengdar ýmsum fornum átrúnaði. Það er hefð fyrir því á Norðurlöndunum að fólk komi saman til að gleðjast og njóta nærandi samvista í náttúrunni á lengsta degi ársins.
Laugarskarð er ein elsta og fallegasta útisundlaug landsins. Hún er svokölluð gegnumrennslislaug, hituð upp með jarðgufu, sem tryggir eðlilegt sýrustig og hreinleika vatnsins.
Viðburðurinn hefst kl. 19.30.
Athugið að til að fá staðfestingu um bókun þarf að skrá netfang og forföll þarf að boða með a.m.k. sólarhrings fyrirvara.
Deila
