Flotmeðferð
Djúpslökun, vellíðan og endurnæring
Flotmeðferð er djúpslakandi vatnsmeðferð sem kemur úr smiðju Flothettu. Ferlið er úthugsað með það að leiðarljósi að þáttakendur upplifi djúpa slökun, vellíðan og endurnæringu.
Flotmeðferð er djúpt og nærandi ferðalag þar sem þátttakendur eru leiddir af mýkt og öryggi inn í kyrrð og eftirgjöf í þyngdarleysi vatnsins. Í Flotmeðferð er unnið með mjúkar flæðishreyfingar og nudd til að næra og örva heilbrigt orkuflæði líkamans og losa út neikvæð áhrif streitu.
Tímarnir eru fámennir hópatímar og eru alltaf í umsjón reyndra flot- og vatnsmeðferðaraðila sem lokið hafa námi í Flotþerapíu/vatnsmeðferðarvinnu.
Flotmeðferðirnar fara fram í Mörkinni, Suðurlandsbraut 64. Flotbúnaður er á staðnum og umsjónaraðilar sjá til þess að þátttakendur séu með þann flotstuðning sem líkami þeirra þarf. Verð 11.500 kr.
Athugið að til að fá staðfestingu um bókun þarf að skrá netfang og forföll þarf að boða með a.m.k. sólarhrings fyrirvara.
Við bjóðum einnig upp á sérsniðnar upplifanir fyrir hópa og fyrirtæki. Fyrir frekari upplýsingar og bókanir hafið samband flothetta@flothetta.com
Hér fyrir neðan er hægt að finna lausa tíma og skrá sig í Flotmeðferð: